BANNOCKBURN.
AVARP ROBERT BRUCE TIL HERLITHS SINS.
EPTIR BURNS.
Skotar, er Wallace vörðust með,
Víg með Bruce opt hafið sjeð;
Velkomnir að blóðgum beð,
Bjartri eða sigurfrægð!
Stund og dagur dýr nú er;
Dauðinn ógnar hvar sem sjer;
Játvarðs að oss æðir her—
Ok og hlekkja nægð!
Hverr vill bera níðings nafn?
Ná hver bleyðu seðja hrafn?
Falla þræl ófrjálsum jafn?
Flýti hann burtu sjer!
Hverr vill hlinur Hildar báls
Hjör nú draga hins góða máls,
Standa bæði og falla frjáls?
Fari hann eptir mjer!
Ánauðar við eymd og grönd!
Yðar sona þrældóms bönd!
Vjer viljum láta líf og önd,
En leysa úr hlekkjum þá!
Fellið grimma fjendur því!
Frelsi er hverju höggi í!
Sjái oss hrósa sigri ný
Sol, eða orðna að ná!
We give the original, so they may be readily compared.